Bergrún
fimmtudagur, ágúst 28, 2003
 
Nú er farið að hausta...
...og ég er orðin vel stressuð þar sem nú er aðeins vika þar til ég verð komin af stað út á Atlantshafið ein og yfirgefin með græna litla bílnum mínum. Ég var svo heppin að fá að fara í aðra siglingu með vinnunni og gat því frestað því eina ferðina enn að hugsa um hvað ég þarf að taka með mér og hvernig ég á að fara að því að pakka öllu því sem ég ætla að taka með mér til útlandanna. Í morgun rann svo upp fyrir mér ljós að nú væri ekkert fleira sem truflar og ég verð að fara að taka mig á og koma e-u í verk, þess vegna fór ég heim úr vinnunni klukkan tvö og vitiði bara hvað? Bergrún bara fór að sofa og er enn ekki búin að gera nokkurn skapaðan hlut.
Annað sem hefur verið að angra mig er að á þriðjudaginn átti ég erindi upp í sendiráð og hélt að ég ætti bara að sækja eitt lítið bréf og gæti svo hlaupið út aftur. Ég gerði sem sé ráð fyrir að ég gæti bara talað við manninn sem ég hef haft samband við í allan vetur og okkur hefur komið ágætlega saman og rætt öll mín mál á góðri ensku (enda ekki nema sangjarnt að báðir aðilar tali á öðru tungumáli en sínu eigin móðurmáli!!!). Annað kom nú á daginn, ég kom æðandi inn og lá mikið á þar sem ég var að skrópa í vinnunni og hélt að ég væri að verða of sein í feltferðina, maðurinn "minn" var í símanum og ég mátti bíða, svo loksins var hann búinn og kom og spjallaði við mig lengi lengi að mér fannst og svo endaði þetta á því að ég þurfti að fylgja honum upp og hitta e-a konu sem þurfti að skrifa undir plagg fyrir mig. Konan, sem vissi að ég var að fara til Frakklands í nám og gerði því ráð fyrir að stelpan talaði frönsku, talaði bara og talaði við mig (á frönsku nota bene) og ég stóð og horfði á hana tómum augum og sagði oui, oui, merci, oui, og fátt annað! úff hvað þetta var hræðilegt og síðan þetta atvik átti sér stað á þriðjudaginn hefur mig bara ekkert langað að fara til Frakklands. Best að hrista þetta samt af sér, ég skildi nú að mestu það sem konan sagði þrátt fyrir að ég gæti ekki svarað henni af miklum sóma!
Í kvöld er ég að fara að hitta frænku mína og fá svona kveðjukaffi og svo kemur morgundagurinn, síðasti dagurinn í vinnunni og á eftir honum kemur helgin sem verðu notuð eins vel og mögulegt er við að pakka og pakka og hugsa og pakka og pakka og svo kemur að þriðjudeginum sem ég bruna af stað.
Hef þetta ekki lengra að sinni
 
laugardagur, ágúst 16, 2003
 
Góðir hálsar

Nú er kominn laugardagur og ég heyrði í útvarpinu áðan eða svona um kl. 13.30 að Menninarnótt væri sett! Eiginlega fannst mér ekki við hæfi að hefja nóttina svona snemma en það er víst bara mín skoðun á málinu, ætli fólk verði ekki að fá að ákveða sjálft hvenær það er dagur og hvenær nótt?!!

Já ég er með erlenda gesti heima hjá mér og nú er sko mikið álag á mér að hafa ofanaf fyrir þeim, eins og flestir sem vita e-ð um mig vita þá er ég ekki besti gestgjafi heims og vil helst að fólkið hafi ofanaf fyrir sér sjálft. Ég er búin að sýna þeim ískápinn og hvar þau mega sofa og svo vil ég bara að þau reddi sér, glætan að ég nenni að fara að vera myndarleg allt í einu og elda og vakna hálftíma á undan þeim til að finna til morgunmat með óendanlegu úrvali eins og þau væru á e-u 5 stjörnu hóteli ó nei ég held ekki. Þau ykkar sem ætlið að koma í heimsókn til mín til France kannski leggið þetta á minnið hahahaha

Ég fór aðeins í gögutúr með Ólafíu áðan og við bara höfðum lítið fyrir því að ganga alla leiðina úr Breiðholtinu og yfir í Kópavoginn, geri aðrir betur!!! (að vísu er erfitt að sjá hvar skilur á milli en við komum samt auga á sterklega girðingu og tvö hús með svona varðmannaturnum og vorum því nokkuð vissar um að við værum á landamærunum)

Best að koma sér að því að skrifa þetta bréf sem ég ætlaði mér að skrifa þegar ég settist hér niður og svo þarf ég að setja í mig kraft og vinda mér í að klára súlurnar mínar (þetta eru öskulagasúlur bara svo þið þessi sem misskiljið allt farið ekki að hugsa of langt).
 
þriðjudagur, ágúst 12, 2003
 
Komin í siðmenninguna á ný
Jæja þá er nú orðið allt of langt síðan ég aulaðist til að hripa niður nokkur orð um mig og líf mitt hér á þessa síðu. Ég fer að hafa áhyggjur af því að hún Ólafía taki mig út af listanum sínum því hún var með e-r slíkar hótanir um daginn!!!

Annars hef ég fullgilda ástæðu fyrir því að hafa ekki skrifað síðustu vikuna því ég er búin að vera stödd svo langt frá allri siðmenningu að það hefur ekki einu sinni verðið símasamband já trúið mér ég er ekki að plata. Annars hef ég verið í vinnuferð á Kárahnúkasvæðinu (eða Kárahnjúka fyrir þá sem það vilja) og þar hefur sko eitt og annað tekið miklum breytingum síðasta árið. Þarna eru komnir stórir og feitir vegir í stað litlu fallegu holóttu slóðanna og svo eru risagröfur og trukkar um allt og skilti sem á stendur: "VARÚÐ sprengingar í gangi" og "Landsvirkjun byggir veg, víkið fyrir vinnuumferð" og fleira í þessum dúr! Hræðilegt að sjá hvernig farið er með svæðið. Svo eru skilti þar sem Landsvirkjun er að sína hvernig þetta verður allt og reynt að útskýra þetta allt með myndum en myndirnar eru teknar þannig að þær blekkja ótrúlega mikið og lónið virðist mun minna en það verður í rauninni. Svona látum við platast af sjónblekkingum! Ég verð bara sorgmædd af því að hugsa um þetta allt. Þegar maður keyrir um svæðið og sér hve mikið land fer undir vatn gerir maður sér grein fyrir hve ógnvænlegt þetta er og svo að sjá jökulsána sem verður bara flutt í burtu úr Jökuldalnum þá verð ég nú að segja að maðurinn er farinn að leifa sér fremur margt að mínu mati! Burtséð frá öllu þessu hef ég svo sem enga rökstudda skoðun á því hvort rétt sé að byggja þessa virkjun eður ei, nota bara mitt vanalega "mér bara finnst það!"

Nú þegar ég er komin aftur heim þá hellast yfir mig áhyggjurnar því nú styttist óðum í að ég fari til Frakklands og ég þarf víst að gera ýmislegt fyrir þann tíma. Á morgun er ég að fara með honum pabba gamla að skoða e-n bíl sem kemur til greina að kaupa og svo þarf ég að panta tíma til að tala við vin minn í sendiráðinu þannig að það verður nóg að gera næstu daga. Auk þess er planað að við Kvennóstelpurnar hittumst allar fimm og það er nú viðburður sem gerist ekki oft núorðið og ég hlakka SVAKALEGA til. Ofan á allt þetta er kanadíski vinur minn að koma til landsins og þá geri ég ráð fyrir að heimsókn í Bláa lónið sé á dagskrá næstu dagana.

Hafið það gott öll og ég er farin að sofa, góða nótt
 
Vangaveltur



Um víða veröld
Abbó fólkið
Frænkurnar
Helga frænka
Lilja Bjarklind
Ólafía
Ólafía og Bjössi
Sóley
Björk
Steindrekinn

Smáfólk
Álfrún Inga
Melkorka Kristín Jónsdóttir
Benedikt Einar
Tómas Helgi
Kristófer Óli
Símon Karl

Ýmislegt
Wikipedia

Gömul skrif
07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 07/01/2004 - 08/01/2004 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 09/01/2005 - 10/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 / 11/01/2005 - 12/01/2005 / 12/01/2005 - 01/01/2006 / 01/01/2006 - 02/01/2006 / 02/01/2006 - 03/01/2006 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 04/01/2006 - 05/01/2006 / 05/01/2006 - 06/01/2006 / 06/01/2006 - 07/01/2006 / 07/01/2006 - 08/01/2006 / 08/01/2006 - 09/01/2006 / 09/01/2006 - 10/01/2006 / 10/01/2006 - 11/01/2006 / 11/01/2006 - 12/01/2006 / 12/01/2006 - 01/01/2007 / 01/01/2007 - 02/01/2007 / 02/01/2007 - 03/01/2007 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 04/01/2007 - 05/01/2007 / 05/01/2007 - 06/01/2007 / 06/01/2007 - 07/01/2007 / 08/01/2007 - 09/01/2007 / 09/01/2007 - 10/01/2007 / 10/01/2007 - 11/01/2007 / 11/01/2007 - 12/01/2007 / 12/01/2007 - 01/01/2008 / 01/01/2008 - 02/01/2008 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 04/01/2008 - 05/01/2008 / 05/01/2008 - 06/01/2008 / 06/01/2008 - 07/01/2008 / 10/01/2008 - 11/01/2008 / 12/01/2008 - 01/01/2009 /


Powered by Blogger Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com