Hæ
Lítið í fréttum, kallast gúrkutíð. Rigndi hér um daginn, ég kom heim í blautum sokkum. Stefnan sett á að kaupa gardínur um helgina, skórnir verða að bíða. Er á fullu að læra á ný forrit, bæði teikni og reikni! Fjör. Er orðin svöng, á eplamauk í dós, held ég skveri því í mig og haldi svo heim á leið.
Á morgun get ég ekki mætt í skólann/vinnuna fyrr en seint því ég þarf að vera heima til að taka á móti símamanninum! Hann ætlar að opna símalínuna okkar, þá verður nú gaman! Ég hef fulla trú á að síminn muni ekki hætta að hringja.
Er gjörsamlega tóm í hausnum eftir tölvuvinnu dagsins- þetta eru mannskemmanditæki en hvernig færi ég af án þeirra (já jafnvel ég ein hin tæknifatlaðasta held að mér liði nú illa án þessara tækja)